Fréttir
14.03.10
Sigur í fyrsta móti landar oft meistaratitli
Sigur í fyrsta móti...

Fernando Alonso bættist í hóp þeirra Ferrari ökumanna sem vinna sigur í fyrstu keppni sinni með liðinu, en áður höfðu Juan Manuel Fangio árið 1956, Nigel Mansell 1989 og Kimi Raikkönen gert slíkt hið sama 2007. Einnig Mario Anderetti árið 1971.

Sigurvegari fyrsta mótsins hefur í 16 tilfellum af 20 orðið meistari á sama ári, en Alonso stefnir á sinn þriðja titil. Hann hefur tvisvar orðið meistari og í bæði skiptin vann hann einnig í Barein.

Ferrari vann tvöfalt og árin 1952, 1953, 2000 og 2004 vann Ferrari tvöfalt í fyrsta mótinu sem lauk með því að titill kom í hús.

Ferrari vann aðeins eitt mót árið 2009 og kom aldrei báðum ökumönnum á verðlaunapall það ár, en síðast vann liðið tvöfalt árið 2008.

Lewis Hamilton komst í fyrsta skipti á verðlaunapall á brautinni í Barein, á meðan Sebastian Vettel missti niður sigur en halaði samt inn dýrmæt stig með fjórða sætinu. Í fyrra náði Vettel ekki að klára fyrstu tvö mótin og var orðinn 15 stigum á eftir Button.
 
Nico Rosberg varð á undan Michael Schumacher hvað Mercedes menn varðar og náði sínum besta árangri í Barein. Hann tryggði sér GP titilinn á brautinni árið 2005.

Schumacher er elsti ökumaðurinn til að ná í stig í keppni síðan Nigel Manseel vann í Ástralíu 1994. Schumacher varð á undan Jenson Button, sem ók í fyrsta móti sínu með McLaren.

Mark Webber hefur aldrei lokið keppni meðal fimm fremstu, þó hann hafi keppt í sjö mótum. Hann varð áttundi á undan Tonio Liuzzi, sem nældi í sín fyrstu stig síðan í Kína 2007. Síðustu stigin fékk Rubens Barrichello hjá Williams.

Sjö ökumenn féllu úr leik i Barein og þrjú ný lið mættu til leiks. Lotus náði að skila báðum bílum í endamark, með Heikki Kovalianen og Jarno Trulli. En allir bílar Virgin og Hispania féllu úr leik fyrir 19 hring.

Sean Kelly.