Fréttir
14.03.10
Ólán Vettels, happ Alonso og Ferrari
Það var mikil gleði í herbúðum Ferrari eftir tvöfaldan sigur í fyrsta Formúlu 1 móti ársins. Fernando Alonso kom fyrstur í mark á undan Felipe Massa í Barein, í móti sem var heldur tilþrifalítið.
Til að mynda hefur Martin Whitmarsh hjá McLaren áhyggjur af því að reglubreytingar, aksturs með fulla bensíntanka og slíkt hafi ekki skilað tilætluðum árangri.
Altént tryggði Alonso sér 25 dýrmæt stig samkvæmt nýrri stigagjöf, en Massa fékk 18. Vettel leiddi mótið frá upphafi, en varð síðan fyrir því óláni að útblásturskerfi bílsins gaf sig að Red Bull menn töldu og hann missti talsvert af afli Renault vélarinnar. Eftir keppni kom í ljós að rafbúnaður á vélinni hafði bilað.
Alonso, Massa og Lewis Hamilton hjá McLaren náðu þá að skjótast framúr honum, en á einhvern hátt tókst Vettel að halda stöðu sinni gagnvart öðrum.
Michael Schumacher þreytti frumraun sína, ræsti sjöundi af stað á ráslínu og vann sig upp um sæti, en varð á eftir félaga sínum Nico Rosberg á Mercedes. Frumraun raunverulegs meistaraliðs, fyrrum Brawn hófst því ekki á sem besta hátt á meðan meistari ökumanna varð enn aftar eða í sjöunda sæti.
Alonso náði besta tíma í einstökum hring og Massa náði ekki að ógna honum á endasprettinum. Varð sextán sekúndum á eftir félaga sínum.
Lokastaðan
11. Alonso Ferrari 1:39:20.396
2. Massa Ferrari + 16.099
3. Hamilton McLaren-Mercedes + 23.182
4. Vettel Red Bull-Renault + 38.713
5. Rosberg Mercedes + 40.263
6. Schumacher Mercedes + 44.180
7. Button McLaren-Mercedes + 45.260
8. Webber Red Bull-Renault + 46.308
9. Liuzzi Force India-Mercedes + 53.089
10. Barrichello Williams-Cosworth + 1:02.400
11. Kubica Renault + 1:09.093
12. Sutil Force India-Mercedes + 1:22.958
13. Alguersuari Toro Rosso-Ferrari + 1:32.656
Stigin
1. Alonso 25 1. Ferrari 43
2. Massa 18 2. McLaren-Mercedes 21
3. Hamilton 15 3. Mercedes 18
4. Vettel 12 4. Red Bull-Renault 16
5. Rosberg 10 5. Force India-Mercedes 2
6. Schumacher 8 6. Williams-Cosworth 1
7. Button 6
8. Webber 4



