Red Bull
Sebastian Vettel
Það kemur mér verulega á óvart að vera fremstur á ráslínu. Við höfðum ekki hugmynd um hvar við vorum staddir eftir æfingar vetrarins. Það gekk ekki vel hjá okkur í gær og ég gat ekki keyrt eins mikið og ég vildi. Þjónustumennirnir unnu fram á nótt og menn voru þreyttir í morgun, en samt áhugasamir. Ég vissi að ég var með góðan bíl og tímatakan gekk snuðrulaust. Ég er ánægður að ná besta tíma. Það góð tilfinning að vera á toppnum eftir alla vinnu minna manna.
Mark Webber
Ég náði mínum versta hring þegar mest lá við. Mér gekk fram að sextándu beygju, en síðan fór allt í vaskinn. Það var gott hjá Seb að ná ráspól og ég hefði vart náð ofar en sjötta sæti, sem eru viss vonbrigði. En keppnin er löng og ströng.
Ferrari
Felipe Massa
Það er gott að vera samkeppnisfær, eftir erfiða tíma og góð byrjun á tímabilinu verðlaunar liðið fyrir mikla vinnu. Mótið verður mjög erfitt, en ég er ánægður að eiga möguleika á toppslagnum. Það eru margir óvissuþætti framundan varðandi mótið, eins og skipta um dekk á réttum tíma. Ég gaf mig allan í tímatökuna og náði góðum lokahring. Mér þótti vænt um það sem Vettel sagði um mig á blaðamannafundinum og gott að finna að menn bera virðingu fyrir hvor öðrum.
Fernando Alonso
Við höfum ekki raunverulegan samanburð við aðra þangað til í dag. En getum verið sáttir við stöðuna og þátttaka okkar í meistaramótinu byrjar á jákvæðu nótunum, en Vettel gerði betur. Ég tapaði dýrmætum tíma í tveimur beygjum, sem getur alltaf gerst þegar maður vill ná besta tíma. Ég er ekki hissa á að Massa er á undan mér og hann er góður á þessari braut. Við vitum hvar við stöndum og höfum núna átta mánuði að vinna í bílnum.
McLaren
Lewis Hamilton
Ég er hissa á úrslitum dagsins og átti ekki von á fjórða sæti á ráslínu. En þetta lofar góðu og ég vonast til að halda sætinu og kannski vinna mig upp um eitt. Ég hef ekki trú á því að ég geti unnið. Ég átti í vandræðum á miðkafla brautarinnar og staðan er miklu betri en í upphafi tímabilsins í fyrra. Það verður erfitt að stýra gangi mála hvað dekkin varðar. Það er mjög vandasamt við þessar aðstæður og þau missa grip ótrúlega fljótt.
Jenson Button
Ég var sífellt sáttari við bílinn í tímatökunni, nema hvað í lokaumferðinni. Það var eitthvað ekki að virka og tæknimenn mínir eru að skoða hvað það er. Það hefur komið okkur á óvart að sjá hraða toppbílanna, en kannski breytist þetta þegar mótið er komið í gang. Sumir bílar eru kannski fljótir án mikils bensíns, en þeir verða bensínþungir í kappakstrinum. Þá er ekki hægt að ákveða keppnisáætlir á laugardögum. Við verðum að sjá hvernig framvindan verður. Það aka margir þungir bílar að fyrstu beygjunni og ég vonast til að komast snyrtilega í gegnum hana.
Mercedes GP
Nico Rosberg
Ég var satt að segja að vonast eftir betri árangri, en okkur skorti einfaldlega hraða og erfitt að ráða við bílinn á dekkjunum sem ofhitnuðu. Ef maður gerði mistök og yfirstýrði, þá tapaði maður miklu gripi í næstu beygjum á eftir. Það verður afar mikilvægt að gæta að dekkjunum í keppninni. Ef við erum heppnir, þá komumst við á verðlaunapall í keppninni.
Michael Schumacher
Ég er sáttur við sjöunda sætið í dag, eftir að hafa verið fjarri Formúlu 1 í langan tíma. Þetta er sama sæti og ég náði í fyrsta Formúlu 1 mótinu á Spa árið 1991. Það hefur verið gaman að vinna með Mercedes og ég kann að meta þann stuðning sem ég fæ. Liðsmenn mínir eru verulega færir og við höfum bætt okkur smám saman. Ég hlakka til mótsins og framhaldsins.



