Sebastian Vettel frá Þýskalandi á Red Bull sneri á Ferrari ökumennina Felipe Massa og Fernando Alonso í Barein í dag. Hann náði besta tíma í lokaumferð tímaökunnar.
Michael Schumacher á Mercedes varð sjöundi, en margir fylgjast með framgangi hans eftir endurkomu í Formúlu 1. Meistarinn Jenson Button varð áttundi á eftir Schumacher og byrjar því ekki titilvörnina sem best. Hann er þó sagður hafa mjúkan akstursstíl, sem gæti hjálpað honumm þegar kemur að keppninni. Að fara vel með dekkin verður lykilatriði í mótinu, en Hamilton var einmitt í vandræðum í gær, þar sem dekkjaslit undir bíl hans var mikið. Hann sagðist þurfa aðlaga akstursstíl sinn að því.
Vettel sagði á fundinum að kappaksturinn væri óráðinn gæta vegna þess að keppendur aka af stað á mýkri dekkjunum og þurfa að skipta um dekk, en menn verða að nota harðari útgáfu dekkjanna frá Brigdestone líka. Allir leggja af stað með fulla bensíntanka og aðeins er tekið þjónustuhlé fyrir dekk, ekki bensín. Er því úr vöndu að ráða fyrir liðin.
Bein útsending frá kappaksttrinum er´kl. 11.30 á Stöð 2 Sport á sunnudag og er hún í opinni dagskrá að vanda.
Tímarnir í dag
1. Vettel Red Bull-Renault 1:55.029 1:53.883 1:54.101
2. Massa Ferrari 1:55.313 1:54.331 1:54.242
3. Alonso Ferrari 1:54.612 1:54.172 1:54.608
4. Hamilton McLaren-Mercedes 1:55.341 1:54.707 1:55.217
5. Rosberg Mercedes 1:55.463 1:54.682 1:55.241
6. Webber Red Bull-Renault 1:55.298 1:54.318 1:55.284
7. Schumacher Mercedes 1:55.593 1:55.105 1:55.524
8. Button McLaren-Mercedes 1:55.715 1:55.168 1:55.672
9. Kubica Renault 1:55.511 1:54.963 1:55.885
10. Sutil Force India-Mercedes 1:55.213 1:54.996 1:56.309
11. Barrichello Williams-Cosworth 1:55.969 1:55.330
12. Liuzzi Force India-Mercedes 1:55.628 1:55.653
13. Hulkenberg Williams-Cosworth 1:56.375 1:55.857
14. de la Rosa Sauber-Ferrari 1:56.428 1:56.237
15. Buemi Toro Rosso-Ferrari 1:56.189 1:56.265
16. Kobayashi Sauber-Ferrari 1:56.541 1:56.270
17. Petrov Renault 1:56.167 1:56.619
18. Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1:57.071
19. Glock Virgin-Cosworth 1:59.728
20. Trulli Lotus-Cosworth 1:59.852
21. Kovalainen Lotus-Cosworth 2:00.313
22. di Grassi Virgin-Cosworth 2:00.587
23. Senna HRT-Cosworth 2:03.240
24. Chandhok HRT-Cosworth 2:04.904



