Fréttir
05.07.09
Kristján í kröppun dansi en vann fyrsta bikarinn
Kristján Einar Kristjánsson tók verðmæt stig og verðlaunabikar á Donington
Park brautinni í Bretlandi þegar hann keppti þar í Opnu Evrópsku Formúlu 3 í
dag. Hann vann sinn fystta bikar í þessari mótaröð.
Úrhellisrigning var þegar keppnin hófst og afleitar aðstæður, en í lok
keppni var komið heiðskýrt og sól. Kristján Einar ræsti sjöundi í sínum flokki í
dag en hafðiunnið sig upp í annað sæti um miðbik keppninnar og hélt því þar til
undir lokin á síðasta hring þegar bíllinn spann í brautinni. Hann náði að halda áfram og
náði að ljúka keppni í þriðja sæti.
"Þetta voru frábær endalok á keppnishelginni, en ég skal alveg viðurkenna að
þetta er einhver erfiðasti kappakstur sem ég hef keyrt, bæði fyrir mig og
fyrir bílinn," sagði Kristján Einar.
"Eftir gott gengi á föstudagsæfingunum var ég mjög ósáttur við sjálfan mig í
tímatökum í gær þar sem ég var hraðastur af hópnum á tveimur fremstu
brautarhlutunum og svo með þeim alhægustu á þeim síðasta. En ég er með tvo
frábæra tæknistjóra hér með mér og vinna með svona reynsluboltum
skipti sköpum í dag."



