Veðrið lét ekki að sér hæða í Bretlandi í dag, en úrhellisrigning var á æfingu hjá Kristjáni Einar Kristjánssyni sem keppir á Donington Park um helgina í opnu evrópsku Formúlu 3 mótaröðinni.
Kristján var með þriðja besta tímann af bíllum í hans flokki sem nefnist Copa, en önnur æfing er eftir hádegi. Tímatökurnar eru á morgun og fyrst umferð kappaksturs, en sú síðari á sunnudag.
Donington Park verður notuð í Formúlu 1 á næsta ári, en í breyttri mynd og kemur í staðinn fyrir Silverstone kappaksturinn. Fyrrum liðsfélagar Kristjáns hjá Carlin Motorsport í fyrra eru komnir að sem Formúlu 1 varaökumenn hjá Red Bull, en þeir Brendon Hartley og Jamie Alguseari kepptu í bresku Formúlu 3 mótaröðinni og sjást hér á mynd með Kristjáni.
Opna Formúlu 3 mótaröðin var áður spænska Formúlu 3 mótaröðin og Algusuerai vann þá mótaröð á árum áður. Hann hefur sett stefnuna á sæti hjá Torro Rosso á næsta ári.



