Kristján Einar Kristjánsson ók í fyrri umferð Opnu Evrópsku Formúlu 3 á Spa brautinni í Belgíu í dag. Í mótaröðinni keppa 24 bílar,12 Dallara 306 bílar og 12 Dallara 308. Kristján Einar ekur Dallara 306 bíl og keppir því í þremur keppnum í einu; um Copa bikarinn sem 306 bílarnir keppa um, í "overall" keppni sem allir 24 bílarnir keppa í og loks í liðakeppni.
Þar er hann með liðsfélögunum sínum Thor Christian Ebbesvik frá Noregi sem ekur á 308 bíl og Callum Maclead frá Bretlandi sem ekur á 306 bíl og leiðir Copa keppnina. Bæði Kristján Einar og Callum færðu liðinu dýrmæt stig í dag, en einungis er veitt stig fyrir fyrstu fimm sætin.
Tímatökur voru í þoku og raka snemma í morgun og þar var Kristján Einar lengst með 2. besta tíma. Undir lok tímatökunnar þornaði brautin hratt og sem hentaði bíl hans síður og hann féll niður í 8. sæti á ráslínu fyrstu keppninnar.
"Þegar kom að keppni skipti svo litlu hvar ég var á ráslínu því að kúplingin bilaði, allir fóru fram úr og ég kom síðastur í fyrstu beygju" sagði Kristján Einar. En hann sótti stíft í gegnum alla keppnina, bætti sig á hverjum hring og náði besta tíma í loka hringnum. Árangurinn skilaði honum í 5. sæti Copa flokksins.
Kristján Einar hefur áður keppt og æft á Spa og heldur mikið upp braut eins og margir ökumenn ekki síst í Formúlu 1. Þegar hann keppti þar í Bresku Formúlu 3 í fyrra tók hann hraðasta brautarkaflann og besta startið á ferlinum.
Tölfræðin í dag var heldur ekki slæm. Hraðasti hringur hjá Kristjáni Einari var 2.21.432 þar sem meðalhraði hans var 178.3km. Hraðasti hringur hjá fremsta Dallara 306 bílnum í dag var 2.21.335 og meðalhraðinn 179.4. Munurinn er því ekki mikill, sérstaklega í ljósi þess að Spa er rúmlega 7 km löng og hver hringur um tvisvar sinnum lengri en á flestum öðrum kappakstursbrautum.
Seinni keppni helgarinnar hefst 12.30 á staðartíma á morgun. Mótaröðin fer svo næst á Donnington þar sem keppt verður 4. og 5. júlí.



