Spænskir ökumenn voru í fyrsta og öðru sæti í annarri umferð Opnu evrópsku mótaraðarinnar í Fomrúlu 3 á Valencia brautinni á Spáni í gær, en Kristján Einar Kristjánsson keppti í fyrsta skipti með nýju liði sínu. Hann varð í sextánda sæti yfir heildina í frumraun sinn á bílnum og Valencia brautinni.
Kristján kom í raun á síðustu stundu inn í myndina, en einu móti var þegar lokið á Ítalíu í nýrri mótaröð sem er skipulögð af spænskum aðilum. Kristján ekur með West Tec frá Bretlandi, en spænska mótaröðin hefur laðað að sér keppendur sem hafa minna fjármagn en þarf í bresku mótaröðina í Formúlu 3.
Kristján Einar og fjölskylda hafa náð að fjármagn hálft tímabilið og hafa ekki gefist upp þrátt fyrir
mótlæti og yfirstandandi efnahagskreppu. Norðmaðurinn Thor Christian Ebbesvik keppir einnig í mótaröðinni, en hann varð meistari á Spáni 2007.
"Keppnistímabilið verður frábært og það að keppt verður í fleiri löndum laðaði okkur að þessari mótaröð. Keppt er á brautum sem eru notaðar í Formúlu 1 og spænskar mótaraðir hafa verið vagga fyrir ökumenn til að komast í GP2 og Formúlu 1 síðustu ár og þar sem keppt er utan Spánar líka, þá er þetta vænlegur kostur", sagði John Miller framkvæmdarststjóri hjá West Tec, liði Kristjáns.
Lokastaðaní Valencia
1. Celso Miguez Spánn Drivex 24.48.066
2. Bruno Méndez Spán Campos Racing 0.260
3. Jonathan Legris Bretland Emiliodevillota.com 8.371
4. Michele Faccin Ítalíu Hache Team 14.213
5. Augusto Sclabi ARG GTA Motor 14.742
Stigastaðan
1. Bruno Méndez Spánn Campos Racing 19
2. Celso Miguez Spánn Drivex 17
3. Adrián Campos Spánn Campos Racing 16
4. Stefano Bizzarri Ítalíu RP Motorsport 15
5. Jonathan Legris Bretland Emiliodevillota.com 14
Mótin sem eftir eru
Juní 6-7 Jarama Spánn
Juní 27-28 Spa Belgíu
Júlí 4-5 Donington Bretland
Ágúst 29-30 Valencia Spánn
Sept 19-20 Magny Frakkland
Okt. 9-10 Jerez Spánn
Okt. 24-25 Barcelona Spánn
|
Fréttir
04.05.09
Spánverjar fljótastir í fyrsta móti Kristjáns Einars
|
||



