Fréttir
02.05.09
Kristján Einar keppir međ ísenska bjartsýni ađ leiđarljósi
Kristján Einar...

"Bíllinn er tileinkaður Íslandi, bjartsýni og nýju upphafi - og það var nákvæmlega þannig sem mér leið þegar ég kom í fyrsta skipti á brautina í Valencia síðasta fimmtudag," sagði Kristján Einar Kristjánsson kappakstursmaður sem keppir á sunndag í Opnu Formúlu 3 Evrópumótaröðinni á Valencia brautinni á Spáni.

Kristján mun skrifa reglulega um þátttaöku sína í kappakstri á kappakstur.is á þessu ári. Fyrsta grein hans birtist í næstu viku og nýrri útgáfu af vefsvæðinu sem verður tekiði í notkun fyrir spænska Formúlu 1 kappaksturinn.

Kristján Einar keppti í Bresku Formúlu 3 á síðasta keppnistímabili, en hélt til Bandaríkjanna sl. haust í prófanir hjá stórliðinu Newman Wachs Racing fyrir Atlantic Championship mótaröðina. Hann var komin með sæti í liðinu og allt til reiðu fyrir keppnistímabilið um miðjan mars sl. þegar helsti erlendi stuðningsaðili hans heltist út lestinni vegna efnahagsástandsins.

Um það var fjallað í fjölmiðlum erlendis og var  Kristjáni Einari í framhaldi boðið að prófa fyrir Formúlu Le Mans með breska liðinu Team West Tec. Sama lið bauð honum svo æfa fyrir Opnu Formúlu 3 Evrópumótaröðina. "Sú æfing var á Spa í Belgíu í síðustu viku, við lukum samningum sl. mánudag og komum hingað til Valencia á miðvikudaginn - svo maður er rétt að átta sig á þessu," sagði Kristján Einar.

"Þótt þessi mótaröð keppi á samskonar bílum, þá er uppsetningin í keppni og tímatökum frábrugðin bresku F3.  Hér erum við að keppa saman allir bílar í braut, hvort sem það eru Dallara 308 eða Dallara 306 bílar.

Svo er sérkeppni á milli 306 bílanna og svo er keppni á milli liðanna. Þannig að maður er eiginlega í þremur keppnum í sama kappakstrinum.  Það er ein tímataka fyrir báðar keppnir og "superpole" þar sem tíu efstu bílar úr tímatökunni keppa.

Ég þarf að læra dálítið hratt þessa fyrstu helgi en þetta kemur örugglega fljótt. Bara það að vera kominn með sæti í liði fyrir tímabilið og byrjaður að keppa er alveg stórkostlegt og svo langt frá því að vera sjálfsagt eins og ástandið er. Kappakstur er kostnaðarsöm íþrótt og við sjáum þriðjung og hátt í helmings afföll af bílum í mörgum mótaröðun.

Hér eru 22 bílar núna en voru 34 í fyrra og í Bresku F3 eru 23 bílar en voru 36 í fyrra og svo mætti áfram telja. En við náðum að fjármagna fyrri hluta tímabilsins og fyrst að það tókst það er full ástæða til að senda út þau skilaboð að gefast ekki upp - það leynast tækifæri og ljóstýrur í myrkrinu ef maður bara leitar nógu lengi og gefst aldrei upp", sagði Kristján.